Skilmálar

Almennt
Vefsíðan og verslunin er rekin af Býkúpu ehf. Í neðangreindum texta vísa orðin "við", "okkur" og "okkar" til Býkúpu ehf.
Með því að heimsækja síðuna og eftir atvikum eiga viðskipti við okkur telst þú bundin/nn af skilmálum þessum og öðrum skilmálum sem vísað er til í textanum. Hið sama gildir um viðbótarskilmála sem kunna að bætast við síðar, kjósir þú að nota þá þjónustu sem við bjóðum eftir að skilmálar eru uppfærðir.

Öll ólögmæt notkun á síðunni og vörum sem þar eru seldar er bönnuð. Texti, vörumerki (logo), myndir og allt efni á vefnum www.bykupa.is og www.býkúpa.is eru eign Býkúpu ehf. Vörur hannaðar undir merkjum Býkúpu ehf. eru varðar höfundarrétti. Öll afritun, endurframleiðsla, eftirprentun, eftirhermun eða önnur misnotkun á höfundarvörðu efni, í heild eða að hluta, er með öllu óheimil. Vörukaup til endursölu eru óheimil án sérstaks samkomulags þar um.

Þjónusta og verð
Verð í versluninni geta breyst án fyrirvara. Við áskiljum okkur rétt til að breyta vöruúrvali og vöruverði hvenær sem er, sem og að hætta sölu á vörum án frekari tilkynninga og án ábyrgðar gagnvart viðskiptavinum. Við áskiljum okkur rétt á að hafna viðskiptum án skýringa, takmarka það heildarmagn sem selt er til einstakra aðila eða stærð einstakra pantana. Við reynum ávallt að hafa samband við kaupanda í ofangreindum tilfellum.

Vörur kunna að vera framleiddar og/eða seldar í takmörkuðu magni eða yfir takmarkað tímabil. Við áskiljum okkur rétt til að selja vörur okkar einungis í vefversluninni, einungis í verslunum annarra, á mörkuðum, í pop-up verslunum eða með öðrum hætti. Þetta fyrirkomulag getur haft áhrif á vöruskil og -skipti þar sem við getum mögulega ekki tryggt að allar vörur séu alltaf til á öllum sölustöðum. Sjá nánar um skilarétt hér. 

Athugið að litir á tölvuskjám gefa ekki alltaf nákvæma og rétta mynd af raunverulegu útliti vörunnar. Við leggjum okkur fram um að gefa nákvæma og raunsanna lýsingu á vörum okkar, verði, sendingarmöguleikum og -kostnaði og öðru sem máli kann að skipta. Lýsingar geta breyst án fyrirvara og frekari tilkynninga. Við ábyrgjumst ekki eiginleika varanna umfram vörulýsinguna. Verð og aðrar upplýsingar eru settar fram með fyrirvara um innsláttarvillur og önnur mistök. Allur réttur er áskilinn til að hætta við sölu þegar svo háttar til, t.d. vegna mistaka í verðupplýsingum á síðunni.

Við leggjum okkur fram um að leysa farsællega úr málum sem upp kunna að koma varðandi vöruskil og -skipti en getum þó ekki ábyrgst að hægt sé að verða við öllum óskum þar að lútandi. 

Greiðsluskilmálar
Vörur eru afhentar gegn staðgreiðslu eða öðrum þeim greiðsluleiðum sem boðið er upp á í versluninni á hverjum tíma. Um sendingar og gjöld má lesa hér. 

Meðferð upplýsinga 
Greiðsluuplýsingar eru ávallt varðar og eru á ábyrgð greiðslumiðlunarinnar sem við notum. Aðrar upplýsingar kunna að vera fluttar óvarðar af hýsingaraðila síðunnar. Ábyrgð á þeim er á höndum Shopify Inc. Hér má lesa um meðferð þeirra upplýsinga sem þú lætur okkur í té með notkun síðunnar.

Viðskipti við Býkúpu ehf., hvort sem er í gegnum vefverslun eða með öðrum hætti falla undir íslensk lög.

Spurningum tengdum ofangreindum skilmálum má beina á netfangið bykupa@bykupa.is.