Moxé foods
Moxé súkkulaði – bragð af Kólumbíu, þrjár í pakka
Moxé súkkulaði – bragð af Kólumbíu, þrjár í pakka
Moxé leggur metnað sinn í að bjóða lífrænt gæðasúkkulaði sem framleitt er með sjálfbærum hætti úr fyrsta flokks kakói af smábændum í Kólumbíu.
Pakkinn inniheldur þrjár 70g súkkulaðiplötur: Sierra Nevada, 71%, Caquetá, 83% og Huila 86%. Kakóbaunirnar vaxa á ólíkum svæðum í Kólulmbíu og súkkulaðið dregur afgerandi bragðkeim af upprunasvæðinu. Þetta er súkkulaði ólíkt öðru sem þú hefur bragðað.
Einungis tvö hráefni eru í súkkulaðinu: Lífrænt kakó og lífrænn hrásykur.
Markmið Moxé er að tengja saman hagsmuni allra aðila í virðiskeðjunni, frá bændum til neytenda, með ábyrgri framleiðslu, ábyrgri neyslu og gagnsæi í framleiðsluferlinu. Hluti af ágóða fyrirtækisins rennur til uppbyggingar regnskóga Amazon.
Pakkanum fylgir fallegt bókamerki með upplýsingum um lífríki Kólumbíu o.fl.